Lokum ARTPRO
- Nánar
- Birtingardagur: Mánudagur, mars 25 2024 20:43
Við höfum ákveðið að loka ARTPRO Prentþjónustu, allavega að sinni og mjög líklega varanlega.
Ástæðan er verulega breyttar aðstæður okkar á undanförnu ári. Veikindi, slys, dauðsfall og meira bras. Annar eigandi ARTPRO (Guðni) lenti í slysi í júní 2023 og er ennþá að mestu á spítala. Hinn eigandi ARTPRO (Guðbergur) lést í september 2023.
Það er nú ljóst að ég sjálfur mun því miður ekki komast aftur til starfa í ARTPRO eins og áður var, vegna eftirmála slyss í júní 2023. Það er meira en að segja það að standa í því svona lengi að halda öllu opnu og halda uppi góðri þjónustu verandi sjálfur fjarverandi og slasaður. Nú er bara ekki lengur til auka orka í að standa í þessu ofan á það að koma sjálfum mér upp úr hjólastól eftir mikla dvöl á spítala. Núna verður það að vera forgangsatriði númer eitt að ná heilsu.
Við þökkum öll ykkar góðu viðskipti og ánægjulegu samskipti á undanförnum árum.
Með bestu kveðju,
Guðni Þorbjörnsson
Eigandi ARTPRO ehf.
897-7738
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.