Teikningaprentun
- Nánar
- Birtingardagur: Sunnudagur, maí 29 2022 23:47
- Skoðað: 228
TEIKNINGAÞJÓNUSTA FYRIR FAGAÐILA
Við veitum fagaðilum fyrsta flokks þjónustu í öllu sem við kemur teikningaprentun. Svo sem verkfræðistofum, arkitektastofum, byggingafræðingum, raflagnahönnuðum, fasteignafélögum, byggingaverktökum og iðnaðarmönnum. Við afgreiðum pantanir samdægurs nær undantekningalaust. Við erum vel staðsett og með gott aðgengi að Bíldshöfða 14.
- A3 / A2 / A1 / A0 Teikningar
- Teikningaplöstun
- Teikningaskönnun í allt að A0 stærð
- Skönnun og afritun á árituðum, stimpluðum frumritum teikninga.
Teikningapantanir sendist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Takið eftirfarandi fram:
- Kennitölu og reikninganetfang, ef þú ert ekki nú þegar inn í okkar kerfi.
- Magn / fjöldi setta.
- Stærð sem óskað er eftir ef hún er önnur en raunstærð á teikningum í skjölum.
- Ef þú villt fá A1 teikningar brotnar í miðju í stað upprúllaðra.
- Litur eða svarthvítt? Ef teikningar eru í lit þá prentum við þær út í lit, nema óskað sé eftir því að hafa þær svarthvítar. Það er um að gera að spara litinn ef ekki er þörf á honum.
Ekki hika við að hafa samband við okkur á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 547-4444
Við prentum allt fyrir þitt fyrirtæki
- Nánar
- Birtingardagur: Fimmtudagur, febrúar 16 2017 09:10
- Skoðað: 7022
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Við prentum flestallt efni sem fyrirtæki nota við daglegan rekstur og í markaðsskyni. Í nútíma stafrænni tækni getur jafnvel borgað sig að prenta smærri upplög en áður fyrr tíðkaðist og prenta frekar oftar. Þá situr þú síður uppi með mikið magn af úreltu prentefni.
- Nafnspjöld
- Bæklingar
- CAD Teikningaprentun
- Skýrslur
- Vörulistar
- Fréttabréf
- Veggspjöld
- Rúllustandar / Roll-Up Skilti
- Reikningar
- Bréfsefni
- Minnisblokkir
- Verkbeiðnablokkir
- Nafnamerkt prentun
- Fjölpóstur
- Póstkort
- Boðskort
- Umslagaprentun
Vönduð vinna, topp þjónusta og frábær verð.
Ekki hika við að hafa samband við okkur á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 547-4444
Sæstúlkan - Þýðing Guðbergur Bergsson
- Nánar
- Birtingardagur: Föstudagur, júní 19 2015 22:57
- Skoðað: 5011
Nýtt útgáfufélag í eigu Guðna Þorbjörnssonar og Guðbergs Bergssonar, eigenda ARTPRO
Fífill útgáfa er nýtt útgáfufélag sem er í eigu fyrirtækisins ARTPRO ehf. Fyrsta bókin okkar er þegar komin út. Þetta er barnabókin Sæstúlkan eftir portúgölsku skáldkonuna Sophia Breyner Andresen í þýðingu Guðbergs Bergssonar.
Við munum leggja mesta áherslu á val og útgáfu sérlega vandaðra og óvenjulegra barnabóka eftir skáldkonur og karla frá hinum ýmsu löndum í suðurhluta heimsins svo sem: Portúgal, Spáni, Chile, Perú, Ítalíu, Brasilíu, Rúmeníu, Angola og fleira.
Sæstúlkan mun fyrst um sinn aðeins fást í vefverslun okkar á artpro.is eða fifill.is og kostar 1790 krónur.
Hægt er að panta bókina með því að smella á myndina hér fyrir ofan.
Fyrir hönd Fífils og ARTPRO ehf.
Guðni Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri
Guðbergur Bergsson, stjórnarformaður